Sæl og blessuð
Ég verð að viðurkenna það að ég er orðinn ansi spenntur að koma heim yfir jólin Annars er þetta búin að vera mjög fín helgi sem og síðasta helgi þar sem Gussi hélt upp á afmælið sitt og svona smá skrall tekið svona rétt fyrir jól Svo á laugardeginum fyrir viku var ég svo góður og duglegur hehe að passa hana snæfríði fyrir Jón og Eddu þar sem þau fóru í Julefrokost.
Þessi helgi er eins og ég sagði áðan búin að vera mjög fín. Katrín kom til DK á fimmtudagskvöldið og hitti ég hana á föstudagin þar sem þær mæðgurnar buðu mér út að borða sem var mjög gott og segi ég enn og aftur takk fyrir allt!!! eftir matinn var bara tekið rölt um bæinn og kikt inn á einn eða tvo staði þar sem við stönsuðum ekki lengi haha svo á laugardeginum var farið á röltið um bæin og var katrín búin að vera duglega að versla þegar ég hitti hana. svo fórum við bara aftur á röltið og svo að borða og svona mjög fínt og gott nema eftirrétturinn á staðnum haha hann var einhvað það versta sem maður hefur smakkað og við vorum öll 4 sammála um það ísin bragðaðist eins og fiskur og svo var kaffibragð af súkkulaðinu, mjög mjög irnilegt að heyra er það ekki? hehe. Svo um 1 leytið fór e´g frá þeim og fór til Gussa og Co úti á amager þar sem verið var að fagna litlú jólunum og datt maður inn í það og var það hin messta skemmtun hehe. Gott kvöld hja Pleyþóri eins og hann var kallaður af kollegi-genginu hehe. Svo í gær sunnudag var því bara tekið rólega fyrri partinn hja Gussa og svo hitti ég Katrínu og Co þar sem þær voru í Tívolíinu og var farið í flest öll tækin þar, Katrína var spennt fyrir þessu öllu enda elskar hún skemmtigarða. Ég segi bara takk fyrir helgina og allt Katrína og Co.
Dagurinn í dag verður bara rólegur þar sem ég er í skólanum núna og fer svo heim eftir hann eða um hálf 2 svo fer ég og hitta Janus eikkað smá og svo Katrínu og verð eikkað með henni og svo fer hún út á völl þar sem hún flýgur heim á klakann í kvöld sem að ég er að fara að gera eftir fokking 2 daga og ég segi allveg satt að ég get ekki beðið að komast heim í allan matinn og hitta familínu og krakkana
En seigi þetta gott nún aog verður þetta mit síðasta blogg núna fyrir jól þar sem ég er frekar latur í þessu en ég seigi bara GLEÐILEG JÓL OG HAFIÐ ÞAÐ SEM ALLRA BEST YFIR HÁTIÐARNAR
Pétur Dani kveður að sinni
» 0 hafa sagt sína skoðun
Hæ hæ allir saman
Letin er enn og aftur að hrjá man núna. Ekki mikið búið að ske síðan síðast þarsíðasta helgi var bara róleg og nemar reyndar á laugardeginum þá var manni boðið í afmæli út á Bröndby-Strand eða i ghettoinu eins þeir búa þar vilja kalla það Annars var ég bara í leti heima og reyndar fór ég aðeins út að hlaupa. Síðasta vika í skólanumvar löng og frekar í slakari kantinum, allir voru voða þreyttir og ekki beint mikil stemmning fyrir lærdóminum en hann var þó alltaf unninn. Síðasta helgi einkendist af videóglápi með jóni frænda og þokkalegri leti en það var bara mega næs að taka eina svoleiðis helgi. Svo var tekið rosalega á því á mánudaginn þar sem ég og Jón fórum á BUSTA RHYMES þar sem við hittum Pétur sem býr á sama kollegi og Guss. Busta var mega góður og frekar high þarna á sviðinu sem var mega fyndið, brosti alltaf svona þegar hann var nýbúinn að fá sér smók hahaÞað samt svakalegt þegar hann tók Brake your neck, hann söng svo hratt og komu svona 30 orð útúr honum á sek. sem var rosalegt.Aðal umræðuefnið hans á tónleikunum var bara um kunfæri karla og kvenna sem og gras. Svo var frí í gær og var þá bara tekið smá rölt í bænum og fann ég nokkrar gjafir svo að það er eiginlega búið en ekki allveg. Svo á morgun er manni boðið í afmælispartý hjá honum Gussa útá öredundskolleginu og er ég viss um að að verði eikker vitleysa þar ef ég þekki þau rétt haha
Nenni ekki að skrifa meira en við sjáumst eftir 13 daga Það verður svakalegt haha
HEJ HEJ og gangi ykkur vel í prófunum haha
Sælt veri blessað fólkið
Nú er bara 1 mánuður í að maður lendi á klakanum og verður ekki leiðinlegt þá Síðustu 2 vikur eru búnar að vera frekar næs hérna í DK og er ég búinn að taka því fremur rólega. Núna stendur yfir þemavika ískólanum og erum við í hópvinnu og eigum að skila inn 10-15 blaðsíðna skírslu á föstudaginn. Mjög skemmtileg og róleg vika þó unnið sé mikið í tímum. Erum að gera tilraunir og test, og í dag var það þannig að einn úr hópnum var látinn sitja inni í lokuðum kassa ú fraðplasti í 20 mín og mældum við hitaaukninguna í kassanum á meðan. Var frakar fyndið að heyra í bekkjabróðir mínum inni í kassanum þar sem hann var að deyja úr hita og kom hann út rennandi blautur af svita og var honum frekar heitt.
En á miðvikudaginn síðasta lentu Arnaldur og Valla á Kastrup og vorum ég og Tinna konan hans Janusar mætt að taka á móti þeim með spjald sem á stóðu nöfnin þeirra. Arnaldi fannst þetta soldið kjánalegt þegar hann sá þetta en Valla tók ekkert eftir okkur og labbaði eiginlega framhjá okkur en okkur tókst að fanga athygli hennar. Á föstdaginn hitti ég þau eftir skóla og var með þeim til um 7 leitið en þá fórum ég og AB hingað heim til mín og hann gisti hérna. Við höfðum það mjög gott og horfðum á myndir og einhvað skemmtilegt og "fórum við snemma að sofa og svona" Á laugardeginum var svo farið í Tívolí og vorum þar dágóðan tíma eða frá 2 til 7 og var farið í flest öll tækin. Ég fór í fyrsta skiðtið í Himmelróluna og fokk hvað ég var hræddur þarna uppi. Maður situr ú rólu þar sem maður getur losaði sig sjálfur ú beltinu sem er svona flugvélabelti og þettaer ekkert smá hátt. En ég var góður í 2 og 3 ferðinni, þá var maður orðinn vanur Eftir Tívólíið lá leiðin á Hard Rock Cafe þar sem Valla bauð upp á mat. Takk fyrir mig en og aftur Valla. Svo var bara farið heim til Janusar og Tinnu og spilað einhvað fram eftir kvöldi.
Í gær var ég svo að mála hjá Bjögga og svona og er búinn að vera rólegur í dag. Er að fara til Gussa núna að horfa á Meistaradeildina og svo í bolta með FC Guðrúnu eftir þar.
Læt þetta duga og reyni að blogga einhvað bráðlega, svo þarf einhver að kenna mér á þetta myndadæmi. Endilega gefa mér góð ráð bara á MSN eða ara hringja það bannar ykkur engin að gera það alltaf gaman að heyra af klakanum
Venlig hilsen: Pétur Már
» 3 hafa sagt sína skoðun
Jæja langt síðan síðast og er ég varla að nenna að skrifa núna en maður verður að setja smá inn
Undanfarnar 2 vikur hafa verið rólegar í skólanum fyrir utan 1-2 próf og einhverjir stílar sem við áttum að skila sem og ég gerði Annars eru þetta bara búnar að vera rólegar og góðar helgar hér í Danmörkinni verð ég að seigja. Þar síðasta föstudag fór ég með strákunum úr liðinu á Fest í Köge sem er útí rassgati og komum við ekki heim fyrr en 6 um morguninn svo var bara sofið til 5 mjög góður sveefn svo um leitið á laugardeginum fór ég á skólaball sem var mjög fínt svo var sunnudagurinn bara rólegheit og svoleiðis
Þessi helgi er búin að vera bland af öllu. Föstudagurinn var rólegur framan af, fór út að skokka og svo aðeins að lyfta og svoleiðis svo fór ég niður í bæ þar sem ég hitti Gussa og fólkið úr Öresundskolleginu þar sem við fórum inn á Old English sem er bar á móti Tívolíinu. Þar sátum við og sötruðum einhvað og svo klukkan 20:59 kom hið eina sanna Julebrygg á svæðið og var því fagnað um alla danmörku en á föstudaginn var svokallaður J-dagur hér í danmörku þar sem Jólabjórnum er fagnað og svoleiðis Svo fórum við bara heim til Gussa um 2 leitið og rotuðumst til klukkan 12 og þá tók við enska deildin og var horft á 2 eða 3 leiki og að sjálfsögðu unnu mínir menní Man Utd svo var gærkvöldið frekar rólegt og svona og sofið vel fram til 1 í dag og horfa á báða leikina sem voru sýndir sem enduðuð svo skemmtilega að Arsenal og Chelsea töpuðu svo eftir leikina fór ég bara heim og sit herna og er að spjalla við krakkana á klakanum í storminum
Núna ætla ég að fara og horfa á einhvað skemmtilegt og bíða eftir að skólavikan hefjist jeiiiii haha
Bless í bili
Já halló long time no skrif...
Þá er maður kominn aftur til DK og er maður varla að nenna aftur í skólann en það er víst skylda ef maður vill ekki vera rekinn úr honum.
En allavegana þá var geðveikt í LUX og aðeins og gaman að hitta Emilíu og Kjartan og hvað þá Melkorku og Hrafn( mestu snillingar í heimi). Það var mikill lúxus á kallinum því að maður fékk alltaf að sofa til svona hálf 11-11 og svo var farið með Emilíu einhvað að rölta eða hvað sem er. Maður skellti sér með henni til þýskalands og frakklands og keypti smá af fötum sem maður gerir alltaf Svo var alltaf einhvað gott í hádeginu sama hvar við vorum. En samt verð ég að seigja að þjónustan var ekki til að hrópa húrra fyrir ogþá sérstaklega í france, þar sem þjónarnir voru eins og þeir væru neiddir til að vinna sína vinnu. Svo var Korkan ávallt sótt í skólan rúmlega 3 nema á miðvikudeginum en þá var hún búin um hádegi en Krummi var sóttur um 4 nema þá því þá sóttum við hann fyrr og fórum á einhvern svaka rólóvöll með allskyns tækjum og krakkarnir stoppðu ekki fyrr en við vorum að fara heim. Svo fórum við í matatboð á föstueginum og þar var fullt af liði og fullt af litlum krökkum.
Svo var bara komið heim í gær og þá var lítið stop hérna heima svo fór ég niður í bæ og hitti hana Jónínu sem var með Ingunni og Þórdísi(verzlópíur). Alltaf gamanað hitta nesbúa hérna í DK, svo lá leið okkar á Hard rock þar semvið átum og svo var eikkað röllt svo voru stelpunar einhvað svo dasaðar eftir þessa "rólegu helgi" sem þær áttu hérna svo við fórum bara heim þar sem þær gistu og gerðum einhvað þangað til við sofnuðum um 2. Viti menn við vöknuðum aftur klukkan hálf 8 þar sem stelpurnar þurftu að ganga frá og svona áður en þær færu útá völl og versla einhvað líka. Um 10:45 voru stelpurnar búnar að versla og kveðjustund.
Svo um miðjan dag hitti ég hana Berglindi Lú og var svaka rölt tekið með henni enda fórum við allt strikið og svo líka allar hliðargöturnar og keypti hún það sem vantaði sem var ekki mikið. Svo um 6 leitið þá kvöddumst við og ég fór heim þar sem ég sit núna og geri ekki neitt annað en að glápa á TV og í tölvunni elskulegu
En hef þetta ekki lengra núna við heyrumst heil
» 11 hafa sagt sína skoðun
Hæ hæ hæ
Jæja það er allveg að bresta á þetta blessaða efterarsfrí. Búið að vera mega mikið að gera undanfarið og ég búinn að vera mega duglegur líka, er kominn að mestu inní dönskuna þá að ég skilji ekki þessa dani sem þurfa að taka svona endalaust hratt en það eru ekki allir Danirnir sem ger það sem betur fer Síðasta vika var bara skóli og æfingar út í eitt og var maður voða ánægður að komast í helgarfrí. Frekar súrt samt að tapa þessum leik á laugardaginn en við áttum allt annað skilið en að tapa, skil ekki þessa óheppni sem elti okkur í leiknum. Völlurinn var ein forarleðja, maður rann hvað eftir annað og allir inná vellinum, svo var ekki hægt að senda boltan eftir jörðinni sumstaðar á vellinum því að hann stoppaði bara . leikurinn endaði 2-1 fyrir hina og var það mega súrt. En svo þegar ég kom heim fór ég eiginlega beint til Jón og Eddu og var með þeim þangað til þau fóru í afmæli um 9 leitið og sá maður ekki um að passa hana snæfríði á meðan Hún svaf samt allan tíman svo ég horfði bara á Prison Break einhvað fram eftir nóttu Þessi vika er búin að vera massív og frekar þægilega skóladagarnir eru stuttir en nokkur verkefni sem þarf að skil eins og T.D. listaverkið sem ég var að vinna að í dag og kláraði svo er það bara morgundagurinn, fimmtudagurinn og föstudagurinn í skólanum og svo efterarsferie sem verður mega mikill léttir að komast í smá frí Svo versnar það ekki á mánudaginn þegar ég fer til Lux í dekrun hjá stóru systir og familíunni þar En á morgun er ég að fara á tónleika með Tinnu hans Janusar frænda og frænda hennar. JURASSIC 5 þeir eiga ekki eftir að valda vonbrigðum það er ég viss um, svo er uppselt þannig það verður Crowded á svæðinu YOYOYO
En hef þetta ekki lengra að sinna kem með einhvað um helgina
Veriði sæl
» 1 hafa sagt sína skoðun
Jæja komin vika síðan að maður skrifaði eikkað hérna inná, komin smá leti í mann En þetta var mega næs skólavika í síðustu viku, 11 tímar í heildina að mig minnir, endalaust af einhverjum fríum sem maður kvartar ekki yfir
Helgin var mjög fín fyrir utan leikinn á laugardag sem endaði Við keptum á móti FC Bornholm sem verma fyrsta sætið og byrjaði það ekki vel en strax á 3 mínútu varð miskilningur í vörninni og þeir skoruðu skítamark þar sem keeperinn okkarvarði og fór boltinn í varnarmann hjá okkur og skoppaði löturhægt inn í markið frekar súrt svona í byrjun leiks, en við sóttum og sóttum allan fyrri halfleikinn en nei okkur t´kst bara ekki að skora 3 eða 4 góð færi sem fór forkvörðum. en svo eftir u.þ.b. 10 i seinni hálfleik skoruðu þeir ur skyndisókn og svo strax aftur 5 min seinna en þá vorum við bunir að fækka í vörninni og svona. Endaði leikurinn 4-1 og að sjálfsögðu lagði kallinn upp markið okkar. En eftir leikinn fór ég með Gussa sem hafði komið og horft á leikinn heim til hans út á Amager og vorum bara eikkað að letingjast fengum okkur pabba cola og svona. Svo fengum við okkur að borða og svona. Svo um 10 hittum við Odd og kærustuna hans og svo vina par þeirra 3 hann Hödda og Önnu. Við spiluðum spil og var lagt undir en engir peningar bara gos sem maður þurfti að drekka og svona svo enduðum eg og Gusso heima hjá honum um 5 leitið og rotuðumst eftir smá tíma haha En sunnudagurinn var mjög latur eins og þeir flestir og svo var bara skói í dag og eins mesta rigning sem eg hef lent í, það þurfti að stoppa æfinguna vargna eldina og kom maður heim með 3 þyngri tösku en maður fór með
En framundan er bara skóli og bolti, leikur næstu helgi sem verður að vinnast og skal það gerast eftr hryllinginn i siðasta leik
En hef þetta ekki lengra í bili. bið að heisla öllum á klakanum og í Lux
Bíbóinn hveður að sinni (K)
Sælt veri fólkið sem skoðar þessa blessuðu síðu.
Það er komin laugardagsnótt og er ég bara hérna heima því að ekkert var að gerast í kveld allir voðr þreyttir greinilega eins og ég En vikan er búin og einkenndist hún að löngum skóladögum og erfiðum og leiðinlegum æfingum sem skiluðu sér loksins nú í dag þar sem ég spilaði með 2 liðinu, er búinn að vera að spila með 3 liðinu undanfarið og fékk sénsinn minn í dag þar sem þjálfarinn er búinn að vera ánægður með mig í mínum leikjum
Við spiluðum í dag móti liði sem heitir SØro og er í um 40 min keysrlu fjarlægð frá BrØndby stadion. Við unnum leikinn öruggleg með 6 mörkum gegn 2 og hefðum átt að vinna stærra að mér finnst. Kallin var á skotskónum og setti 2 sem er ekki slæm byrjun með 2 liðinu og vona ég að þetta nái að festa mig í liðinu um óákveðna framtíð Við skoruðum fljótt í leiknum en það var eftir um það bil 10 mínútur sem við fengum horn og var þar enginn annar en Pippinn á næsrstöng sem hoppaði upp og SKALLAÐI boltan í netið Hver segir svo að maður þurfi að vera stór til að skora með skalla haha Svo skoruðum við aftur eftir um 25 minútna leik og var staðan í hálfleik 2-1 þar sem þeir noðu að pota inn marki rétt undir lokinn á hálfleiknum. Við byrjuðum að krafti í seinni hálfleik og skoruðum 2 mörk og svo minkuðu þer muninn rétt eftir það úr víti en svo kláruðum við dæmið með 2 mörkum í lokinn. Ég átt líka síðasta markið en þar vippa kallinn skemmtilega yfir keeperinn í hinu liðinu Held að boltinn hafi farið svona 20 metra upp í loftið á leiðinni í markið en hann endaði inni og er það sem telur annars voru það Safa, Paulet og Nico sem skoraði líka 2 mörk sem skoruðu mörkin fyrir okkur Svo er ég bara búinn að vera heima í kvöld vegna þreytu minnar og annarra sem ætluðu ekki að gera neitt í kvöld.
Annars er bara allt ljómandi gott að frétta héðan úr DK og gengur skólinn bara þokkalega. Var að byrja í þýsku og er það frekar erfitt haha skil ekki mikið og mikið af krökkunum eru buin að læra þýsku í 2-3 ár
Er að reyna að fatta hvernig ég eigi að láta myndir inná þetta ég kann það bara því miður ekki. Þeir sem eru expertar í svona bloggi endilega kenni mér það svo ég geti látið einhvað af þessum myndum inn
Ætla ekki að hafa þetta lengra núna svo við bara heyrumst, sjáumst eða hvernig sem það verður endilega látið heyra í ykkur síminn minn er 0045 50 58 21 19
Hej hej og har I det fantastisk pa Island i den kolde som er der nu haha her i DK far vi dejligt vejr som er omkring 20°C
Men hej hej(K)
Sæl og blessuð.
Þetta var var bara massa fín helgi þó að allt djamm var látið liggja kyrt. Ég hitti Bjögga og Jenný á laugardaginn og buðu þau mér út að borða sem var mjög sínt, fórum svo bara eikkað á röltið og svo fór ég nú bara heim að sofa á skikkanlegum tíma því ég átti leik í gærmorgun. Okkur gekk bara mjög vel í leiknum og eftir korter var staðan orðin 2-0 fyrir okkur með 2 mörkum frá kappanum en svo endaði leikurinn 6-1 og Pippinn með þrennu. Svo var restin af deginu mjög róleg. í dag vaknaði ég með mega hausverk og eikkað í maganum svo að ég var baraheima og tók því rólega.
Því miður kem ég ekki heim í vetrarfríinu og en fer í staðinn til LUX að hitta Emilíu systur og CO. sem ég er ekki buinn að hitta síðan í byrjun júlí. Það verður mega stuð að fá að hitta þau hjónin og litlu dýrin þeirrs sem maður er buinn að ver frá alltof lengi Annars er allt búið að ganga vel og svona ekkert að kvarta yfir
Þetta var góður endir á tímabilinu hjá 2. flokknum Stebbi hehe þá sérstaklega seinnihálfleiku
En er farinn í bili kem með eikkað spennandi á næstunni
Pétur kveður að sinni
» 4 hafa sagt sína skoðun
Góðan og blessaðan daginn. Það er búið að vera fullt að gera þessa vikuna sem er ekkert nema gott. Á meðan þið eruð buin að vera á eilífu sukki þarna á Íslandi þá er ég búinn að læra og æfa eins og einhver. Sunnudagurinn var ósköp rólegur minnir mig var bara eikkað að lónerast útí horni eða þá að ég var hja Janusi og Tinnu man ekki. Allavegana á var mánudagurinn bara venjulegur, fó´r í skólann svo heim og svo á æfingu og svo aftur heim að slaka á og sofa. Þriðjudagurinn var mjög fínn byrjaði á því að fara í skólann svo fór ég bara heim að slaka á þangað til svona 7 þá fór ég niður í bæ þar sem ég hitti hann Kalla eldri. Hann bauð mér út að bora á veitingastað sem er inni í Tívolíinu sem heitir að mig minnir Pafagaukurinn eða Páfuglinn man ekki Borðuðum við þennan góða rétt og spjölluðum saman í nokkurn tíma fórum við svo á einhvern Pub sem var þarna rétt hjá og horfðum á seinni hálfleik í frekar slöppum leik milli PSV og liverpool. Eftir það fór ég heim að sofa. Miðvikudagurinn, þá var heldur ekki æfing hjá mér svo að eftir skóla fór ég heim í slökun og svo um hálf 6 leitið kom Jón Árni og sótti mig og fór ég heim til þeirra og borðaði mjög góðan mat og eyddi svo kvöldinu með þeim þremur. Fimmtudagurinn var næser þá var bara skóli svo heim og svo á æfingu sem var mjög ágæt og svo bara heim í lærdóm og sofa. Í gær var svo bara stuttur skóli og svo heim að læra og svoleiðis og svo fór ég til Jóns og Co. og gisti þar. Svo er ég bara ´heima núna að fara að detta í spólu og slaka á þangað til ég fer út að borða með Bjögga Finns
En er farinn bæbæ
Hejsa
Vikan búinn og allir ferskir. Fimmtudagurinn var bara mjög fínn, bara skóli, æfing og svo heim að læra og slaka á. Gærdagurinn var ekki verri en þá fór ég í skólann mættur korter yfir 8 og viti menn enginn kennarisem þýddi frí í fyrstu 2 tímunum. svo eftir það var einn tími og svo bara heim að læra Eftir það fór ég í Fisketorvet sem er verslunarmiðstöð rétt hjá bænum. Fann mér þar eina peysu og eitt par af skóm. Fór svo heim að borða og um hálf 9 leitið fór ég til Christians sem er bekkjarbróðir minn og var hjá honum. Svo ákvað ég bara að gista hjá honum og allt í góðu með það. Vöknuðum svo 10 í morgun og fengum okkur að éta og spiluðum fússball sem hann reyndar vann. Svo lá leið mín bara hingað heim og var eg kominn heim um 12 leitið og er bara afslöppun í dag þar sem það er leikur á morgun og svoleiðis.
En ég er farinn í bili endilega látið heyra í ykkur
Venlig hilsen Pippi Már
» 2 hafa sagt sína skoðun
Nú er ég sko ekki sáttur. Djöfullsins skítleikur var þetta hjá okkarmönnum fuff áttum ekkert annað skilið en tap í þessum leik!!! Baunarnir voru bara mikið betri og leifa mönnum eins og honum Rommendahl að vera svona frír og hvað þá að leifi hálfíslenska fíflinu sem reykir út í eitt að skora ég næ þessu bara ekki.
En hvað annað varðar þá er þeta bara búið að vera fínt sko. Það var leikur í gær sem að við unnum 3-0 og lagði kjeppin upp 2 mörk og lét ég það nægja í þeim leik en gærdaurinn var annars voða rólegur bara skóli og svona. Í dag var ég bara í skólanum og svo heim að læra og í CM svo til Janusar og Tinnu að horfa á leikinn sem ég nenni ekki að ræða meira um sko. Á morguner svo bara skóli og æfing og svo þarf maður að koma heim og læra jájá voða voða gaman haha!!
En er farinn í bili bæjó
P.S. Mynirnar koma umleið og einhver gefur mér myndavél og ég elska þig líka Jónína mín
Núna er ég búinn að vera hérna í 3 vikur sem er bara allveg hellingur fyrir mér. Mánudagurinn var bara frekar fínn meðað við venjulega mánudaga, maður var ekki eins þreyttur eftir helgina eins og svo oft áður sem vvar bara fínt svona einu sinni. Það var bara skóli tjill svo æfing og þar var maður boðaður í leik á þriðjudeginum svo fór maður bara heim að slaka á
Í gær þá kom Tómas heim sem er frændi minn eftir 2 mánaða ferð í Filipseyjum þar sem hann var að kafa, klífa fjöll, skoða hrísgrjónaakra og einhvað því um líkt. Ég fór bara í skólann og svo beint að keppa minn fyrsta leik. Við gerðum það bara gott í leiknum og unnum 8-1 og kjeppinn skoraði 2 mörk í sínum fyrsta leik
Dagurinn í dag er bararólegur. Ég vavr bara að koma heim úr skólanum og er að fara að læra og svona svo sérmaður til hvað maður gerir.
En er farinní dag vi ses
Það er kominn sunnudagur og helgin einkendist af bíómyndum og afslöppun.
Fimmtudagurinn var fínn, ég mætti i skólann um 8 og fór heim að honum loknum að sofa í klukkutíma Síðan fór ég á æfingu með varaliðinu klukkan 6 og get það bara mjög vel og vr ég boðaður ´leik á sunnudag.
Föstudagurinn var rólegur verð ég að seigja eftir skóla kom ég bara heim fór svo bara í bæinn að rölta og skoða. fór svo bara heim og var kominn heim um 8 leitið. var svo bara heima og horfði á mynd. Vaknaði svo klukkan 2 á laugardeginum og fór að gorfa á leik hjá aðalliðinu sem þeir unnu 4-1 eða eikkað. fór svo bara heim og var með frændaminum um kvöldið þar sem hann er að fara til Filipseyja á föstudaginn að vinna í einhvern tíma. Vaknaði svo í morgun ferskur og fór að keppa, nema hvað þegar ég mætti inn í klefann þá er manni sagt það að leiknum hafi verið frestað og enginn leikur var jess. Fór ég þá bara heim eftir þessa fíluferð og lærði í svona 2 tíma og svaf eikkað og horfði á mynd og nuna bara að fara að sofa góða nótt og bæbæ(K)